Fara í efni
30.01.2026 Fréttir

FUMÍS bætist í hóp fagfélaga

Í dag var undirrituð samstarfsyfirlýsing FÍN og FUMÍS (Fagfélag um mengun á Íslandi) og bætist FUMÍS þá í góðan hóp fagfélag sem FÍN á í formlegu samstarfi við.

Deildu
Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN, Guðjón Ingi Eggertsson, ritari FUMÍS og Halldóra Björk Bergþórsdóttir varamaður í stjórn FUMÍS.

FUMÍS er frekar nýlega stofnað félag en tilgangur þess er að stuðla að aukinni þekkingu á góðum og vönduðum vinnubrögðum í málefnum mengunar í jarðvegi, yfirborðs- og jarðvatni. Einnig að stuðla að auknu samráði og samstarfi ólíkra aðila í málefnum er varða mengun í jarðvegi, yfirborðs- og jarðvatni og hvetja til faglegra vinnubragða í mengunarmálum á Íslandi.

Við hjá FÍN hlökkum til samstarfsins með FUMÍS og þökkum þeim fyrir komuna í dag.

Það voru þeir Guðjón Ingi Eggertsson, ritari FUMÍS, og Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN, sem innsigluðu samstarfið formlega fyrir hönd félaganna.