Fara í efni
22.05.2026 Fréttir

Frá aðalfundi BHM

Aðalfundur BHM 2026 var haldinn fimmtudaginn 21. maí á Hilton Reykjavík Nordica hóteli og mættu 27 öflugir fulltrúar úr hópi félagsfólks FÍN. Við þökkum þeim kærlega fyrir að mæta og taka þátt, það er dýrmætt að vera með áhugasamt félagsfólk um málefni stéttarfélaga, kaup og kjör. 

Deildu

Aðalfundur fór afar vel fram en með því helsta sem gerðist var að FÍN lagði fram, í samstarfi við nokkur önnur félög, nokkuð viðamikla lagabreytingartillögu. Breytingatillagan var unnin af starfshópi um endurskoðun á innra skipulagi BHM, sem formaður FÍN var í, og snýr að því að breyta fyrirkomulagi aðalfunda BHM og koma á reglubundnum þingum. Breytingatillagan var samþykkt með miklum meirihluta eftir góðar og gagnlegar umræður. Hér má sjá greinargerðina um tillöguna.

Aukið lýðræði

Með þessari breytingu verður aðalfundur BHM áfram haldinn árlega en vera smærri í sniðum og snúast í meira mæli um rekstur bandalagsins. Á tveggja til þriggja ára fresti verður svo haldið þing BHM þar sem pólitísk umræða um málefni mun fara fram, mögulegar lagabreytingar ræddar og bornar undir atkvæði og stefna bandalagsins mótuð. Þessi þing munu vara í 2-3 daga og vera viðameiri en áður hefur verið, enda er ætlunin með þeim að auka á lýðræði og gefa félagsfólki stéttarfélanna enn meira færi á að hafa áhrif á stefnu bandalagsins og setja þau málefni á oddinn sem á þeim brenna.