Inntak ávarpsins var mikilvægi náttúrustofanna og þeirrar sérþekkingar sem starfsfólk þeirra býr yfir á nærumhverfi sínu og náttúru viðkomandi svæða. Náttúrustofurnar eru hornsteinn í rannsóknum á náttúru landsins. Því skiptir máli að FÍN standi þétt við bakið á þeim og verndi sérstöðu þeirra.
Samtök náttúrustofa stóðu fyrir opinni ráðstefnu á Fosshóteli í Stykkishólmi í október, þar sem kynntar voru nokkur af þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem náttúrustofurnar standa fyrir.

Náttúrustofurnar á landinu eru átta talsins og starfa í öllum landshlutum en hægt er að horfa á upptöku af þinginu á Youtube.
Meðal efnis var:
- Hvað hafa rannsóknir á villtum mink á Íslandi leitt í ljós? – Róbert A. Stefánsson og Menja von Schmalensee (N. V-lands)
- Ástand hreindýra á Austurlandi í tíma og rúmi – Dagný Ásta Viðars-Þórhölludóttir (N. A-lands)
- A decade of killer whale research in West Iceland – Marie-Thérèse Mrusczok (N. V-lands)
- Staða og þróun íslenskra bjargfuglastofna – Þorkell Lindberg Þórarinsson (N. NA-lands)
- Áhrif eggjanytja á varpárangur langvíu og stuttnefju – Yann Kolbeinsson (N. NA-lands)
- Stofnsaga fýlsins: er stofnþenslan hitastýrð? – Erpur Snær Hansen (N. S-lands)
- Harðjaxl í hættu - staða og framtíð skúms á Íslandi – Hólmfríður Jakobsdóttir (N. SA-lands) og Kolbrún Sverrisdóttir (N. A-lands)
- Varpstofn sílamáfs í Gálgahrauni – Sunna Hrund Sverrisdóttir (N. SV-lands)
- Sea lice infestations on wild salmonids in the Westfjords – Anja Nickel (N. Vestfjarða)
- Aldur og vöxtur sindraskelja á Íslandi – Sigríður Vala Finnsdóttir (N. SV-lands)
- Áhrif landnýtingar á gróður-og pöddusamfélög í landbúnaðarlandi – María Rúnarsdóttir (N. SA-lands)
- Plastið í Eldey – Sindri Gíslason (N. SV-lands)
- Vatnatilskipun og náttúrustofur – Lilja Jóhannesdóttir (Hafró)
- Árósavötn í Icewater – gerðarskipting og þróun flokkunarkerfis – Ragna Guðrún Snorradóttir (N. NV-lands)
