Fara í efni
23.09.2026 Fréttir

Félagsfundur samþykkir áskorun til atvinnuvegaráðherra

Þriðjudaginn 22. september héldu FÍN og fleiri stéttarfélög félagsfund með starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita.

Deildu

Tilefni fundarins var sú óvissa sem ríkir vegna fyrirhugaðrar Stofnunar atvinnuveganna og hvaða áhrif breytingarnar kunna að hafa á starfsfólk þeirra stofnana og starfseininga sem eiga að renna inn í hina nýju stofnun. 

Ásamt félagsfólki FÍN tók þátt í fundinum félagsfólk Dýralæknafélag Íslands, Visku, Sameykis og Stéttarfélags lögfræðinga. Tilefnið var ærið, enda mörgum spurningum ósvarað varðandi flutning á annað hundra starfa frá sveitarfélögum til ríkis. Miklar tafir hafa orðið á ferlinu og óvissa ríkir um kaup, kjör, staðsetningu starfa og margt fleira. 

Markmið fundarins var að fá skýra mynd af þeim álitaefnum sem helst brenna á starfsfólki vegna fyrirhugaðra breytinga. Jafnframt var markmiðið að tryggja að sjónarmið starfsfólks verði sett fram með sameiginlegum og afdráttarlausum hætti gagnvart atvinnuvegaráðuneytinu.

Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi áskorun til atvinnuvegaráðherra:

Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram, án frekari tafa og eigi síðar en 1. október 2026, opinbera og skuldbindandi tímalínu um stofnun Stofnunar atvinnuveganna. Jafnframt verði starfsfólki veitt skrifleg og ótvíræð svör um framtíðarstörf, starfsstöðvar, kjör, forgangsrétt og varðveislu áunninna réttinda áður en þess er krafist að það taki ákvörðun um framtíð sína í starfi.

Fundurinn telur með öllu óásættanlegt að starfsfólk sé látið búa áfram við óvissu vegna tafa og skorts á upplýsingum.

Áskorun þessi var samþykkt á félagsfundi starfsfólks 22. september 2026, sem eftirfarandi stéttarfélög starfsfólks fyrrnefndra stofnana boðuðu:

Dýralæknafélag Íslands
FÍN
Sameyki
Stéttarfélag lögfræðinga
Viska

Um 120 félagsmenn mættu á fundinn, bæði í sal Visku í Borgartúni og í fjarfundi, og sköpuðust góðar umræður um þau málefni sem tekin voru fyrir. 

/cdn/media/Myndasafn/Frettamyndir-2026/Heilbrigdisfulltruafundur-Thorkell-22-sept.jpg?v=1790087182