Að ósk félagsfólks hefur FÍN boðað til almenns félagsfundar með félagsfólki er starfar í heilbrigðiseftirlitum landsins mánudaginn 1. júní 2026 kl. 11. Tilefnið er sú óvissa sem skapast hefur við boðaðar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits í landinu. Ljóst er að fjölmörgum spurningum er ósvarað hvað varðar kjör og starfsöryggi starfsfólks við boðaðan flutning starfseminnar frá sveitarfélögum til tveggja ríkisstofnana, þar af einnar sem hefur enn ekki verið stofnuð. FÍN hefur að undanförnu sent inn umsagnir til alþingis vegna málsins og viðrað áhyggjur sínar í viðkomandi ráðuneytum. Þá hefur félagið safnað gögnum um kjör og réttindi hópsins. Á fundinum er ætlunin að fara yfir málið í heild sinni með félagsfólki milliliðalaust.
Mynd með fréttinni er frá vinnustaðaheimsókn formanns FÍN til heilbrigðiseftirlits austurlands HAUST s.l. haust.
