Fara í efni
04.11.2026 Fréttir

Á þriðja hundrað skráningar á biðlista eftir einn og hálfan sólarhring

Í gær var opnað fyrir skráningu á biðlista fyrir íbúð hjá nýstofnuðu óhagnaðardrifnu íbúðafélagi FÍN og Visku. Opið er fyrir skráningar á listann til 31. desember 2026 á vefnum ibudafelag.is

Deildu
Mynd: Krisztina Szekeres

Ath. fréttin hefur verið uppfærð.

Í vor á þessu ári gerðu FÍN og Viska samkomulag um stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags, fyrst stéttarfélaga háskólamenntaðra. Samkomulagið markar tímamót fyrir húsnæðisöryggi háskólamenntaðra á vinnumarkaði, en eins og staðan er í dag hafa um 40 þúsund háskólamenntaðir utan ASÍ og BSRB ekkert aðgengi að slíkum úrræðum.

Opið fyrir skráningu

Þriðjudaginn 3. nóvember, var opnað fyrir skráningu á biðlista á vef félagsins, ibudafelag.is, og þegar þetta er ritað hafa á annað hundrað manns frá báðum stéttarfélögum skráð sig. Opið er fyrir skráningar á listann til 31. desember 2026. 

Uppfærsla: Á þriðja hundrað hafa skráð sig eftir einn og hálfan sólarhring.

Allir sem uppfylla viðmiðin til að fá úthlutað íbúð fara á biðlista, en raðað verður á biðlistann með slembiröðun, og fá þau sem skrá sig upplýsingar um hvar þau eru í röðinni á biðlistanum eigi síðar en 15. janúar. Áætlað er að úthluta fyrstu íbúðum félagsins á árinu 2027. 

Stjórn félagsins skipa Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður, Þorkell Heiðarsson varaformaður, Snorri Páll Blöndal gjaldkeri, Bragi Bergsson og Gerður Jónsdóttir. Stjórn hefur mikinn hug á að vinna hratt og vel að uppbyggingu  fjölbreyttra  húsnæðiskosta fyrir félagsfólk.

11% af félagsfólki FÍN og Visku falla undið viðmið um almennar íbúðir

„Það er okkur mikil gleði og stór áfangi að vera búin að opna fyrir skráningu á biðlista félagsins,“ segir Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, formaður stjórnar. „Með stofnun óhagnaðardrifins húsnæðisfélags stígum við í Visku og FÍN mikilvægt fyrsta skref í átt að auknu húsnæðisöryggi og réttlátara húsnæðiskerfi fyrir félagsfólkið okkar.“

Þorkell Heiðarsson, varaformaður stjórnar, tekur undir með Brynhildi og segir: „Í umræðu um kjör háskólamenntaðra er ítrekað tönnlast á þeirri mýtu að allt háskólamenntað fólk falli utan tekju- og eignaviðmiða laga um almennar íbúðir. Það er af og frá. Í könnun sem Viska og FÍN framkvæmdu við stofnun félagsins kemur í ljós að 11% af rúmlega 8.000 félagsfólki félaganna tveggja falla undir núverandi viðmið um almennar íbúðir. Hér er því um að ræða gífurlega mikilvægt framtak fyrir okkar hóp.“

Íbúðafélag FÍN og Visku