Fara í efni

Morgunverðarfundur BHM: Þróun og horfur á vinnumarkaði

Dags
26. febrúar
Kl.
08:30 - 10:30
Staðsetning
Norræna húsið
Hvert stefnir íslenskur vinnumarkaður – og hvaða tækifæri og áskoranir bíða okkar á næstu árum? BHM boðar til morgunverðarfundar fimmtudaginn 26. febrúar kl. 08:30–10:30 í Norræna húsinu. Þar verður rýnt í stöðu og þróun vinnumarkaðarins.
Deildu

Á fundinum verða kynntar nýjar greiningar og spár, fjallað um atvinnustefnu stjórnvalda og horft til framtíðarþarfa atvinnulífsins – sérstaklega þegar kemur að háskólamenntuðu starfsfólki. Einnig verður rætt um hlutverk stéttarfélaga í mótun vinnumarkaðar til framtíðar, bæði innanlands og í alþjóðlegu samhengi.

Kynntar verða nýjar greiningar Vinnumálastofnunar á þróun atvinnuþátttöku og sviðsmyndir, hvar störf skapast og hvar þau tapast m.t.t. menntunar. Litið verður til samanburðar milli geira og þróunar vinnumarkaðar til framtíðar. Jafnframt mun Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra ræða framtíðarsýn stjórnvalda í nýrri atvinnustefnu og Ingvar Freyr Ingvarsson hagfræðingur BHM, fjalla um hvernig stéttarfélög geta haft áhrif á mótun vinnumarkaðar til framtíðar.

Dagskrá:

8:30 - Hús opnar - morgunverður

9:00 - Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

9:15 - Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra

9:30 - Ásta Ásgeirsdóttir, hagfræðingur hjá Vinnumálastofnun

9:45 - Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM

10:00 - Pallborðsumræður þar sem rýnt verður í stöðu og þróun á vinnumarkaði. Í pallborðsumræðum verða:

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar

Karen Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands

Páll Ásgeir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Starfsþróunarseturs BHM

Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM er fundarstjóri.

Fundurinn er opinn öllum, og hvetur BHM félagsfólk aðildarfélaga og hagaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni um mikilvægar áskoranir og tækifæri á vinnumarkaði næstu misseri.

Skráning á fundinn á vef BHM