Eru þín kjaramál nógu FÍN?
Það er einfalt að skipta um stéttarfélag!
FÍN er stéttarfélag fyrir þau sem hafa lokið bakkalárprófi eða ígildi þess frá viðurkenndum háskóla.
Félaginu er umhugað um að veita sem besta þjónustu og býður m.a. upp á hagsmunagæslu á sviði kjara- og réttindamála, túlkun á samningum og ráðgjöf í ágreiningsmálum.
Félagið hefur lagt áherslu á að halda félagsgjöldum í lágmarki og eru þau núna 0,65% af launum. Þú getur smellt hér til að skoða reiknivél og bera gjöldin saman við önnur félög.
Þjónusta við félagsmenn
FÍN kappkostar að veita félögum sínum persónulega og góða þjónustu. Með aðild að FÍN færð þú meðan annars:
- Ráðgjöf vegna kjara- og réttindamála.
- Ráðgjöf vegna ráðningarsamninga.
- Upplýsingar varðandi launakjör og launaþróun.
- Fræðslu frá formanni út á stofnunum/fyrirtækjum þar sem félagsmenn starfa.
- Lögfræðiþjónustu á sviði vinnuréttar.
- Aðstoð við lausn ágreiningsmála á vinnustað.
- Ráðgjöf til félagsmanna í atvinnuleit og styrki til atvinnulausra félagsmanna.
- Félagið er talsmaður/fulltrúi félagsmanna í einstaklingsmálum, ef óskað er eftir.
- Félagið gerir kjarasamninga fyrir félagsmenn hjá hinu opinbera og á almennum vinnumarkaði.
- Aðgang að sjóðum BHM (sjúkrasjóðir, orlofssjóður, starfsmenntasjóðir).
- Aðgang að orlofshúsum OBHM.
Viltu vita meira? Smelltu hér til að lesa nánar um þjónustu félagsins.