Vísindasjóður FÍN

Vísindasjóður FÍN úthlutar styrkjum einu sinni á ári og er ætlað að styrkja félagsmenn til að sækja námskeið, festa kaup á fagbókum o.þ.h.  

Allir sem greitt er fyrir til sjóðsins eiga rétt á greiðslu úr honum í réttu hlutfalli við starfstíma og starfshlutfall, styrkur er greiddur sjálfkrafa fullgildum félagsmeðlimum í desember. Ekki er sótt sérstaklega um styrk úr sjóðnum.  Áætlað er að greiða styrkinn 15. desember ár hvert.

Hægt að skoða hvort greitt hafi verið í sjóðinn fyrir viðkomandi undir iðgjöld á „Mínum síðum“. Hafi sjóðfélagi sótt námskeið eða keypt fagbækur er hægt að draga þann kostnað frá styrknum á skattframtali.  Sé enginn frádráttur frá styrknum er hann skattskyldur. Félagsmenn hjá sveitarfélögum eiga aðild að Vísindasjóði FÍN og einnig þeir sem hafa samið um það í ráðningarsamningi.

 Styrkveiting

Úthlutað er úr Vísindasjóði frá 15. desember til 31. janúar ár hvert. Styrkurinn er greiddur fyrir tímabilið 1. nóvember til 31. október, árið fyrir úthlutun í samræmi við starfshlutfall og starfstíma.  Hægt er að sækja um fyrir fyrra tímabil hafi viðkomandi ekki sótt um styrk en átt rétt í fyrra þá er haft samband á fin@fin.is

Ekki er nauðsynlegt að sækja um styrkinn en styrkurinn er greiddur til fullgildra félagsmanna í desember.

Styrkupphæð

Upphæð styrks er í samræmi við starfshlutfall og starfstíma en upphæðirnar í meðfylgjandi töflu miða við fullt starf allan viðmiðunartímann:

Ár
Upphæð
RVK upphæð Viðmiðunartímabili
 2022-2023 Greitt samkvæmt iðgjaldagreiðslum sjóðfélaga   Skv. iðgjaldagreiðslu 1. nóv 2022-31.okt 2022
 2021-2022 160.000 kr   171.000 kr. 1. nóv 2021-31.okt. 2022
 2020-2021 120.000 kr   128.000 kr.1. nóv. 2020-31. okt. 2021 
2019-2020 145.000 kr.   155.000 kr. 1. nóv. 2019-31. okt. 2020
2018-2019 165.000 kr.   176.000 kr. 1. nóv. 2018-31. okt. 2019
2017-2018  150.000 kr.    1. nóv. 2017-31. okt. 2018
2016-2017  140.000 kr.    1. nóv. 2016-31. okt. 2017
2015-2016 135.000 kr.   1. nóv. 2015-31. okt. 2016

Félagsmenn með fulla aðild eða nemaaðild hjá FÍN og starfa hjá Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og einstaka félagsmenn á almennum markaði eiga aðild að sjóðnum. Félagsmenn FÍN sem starfa hjá ríki eiga ekki aðild að sjóðnum.. Framlag ríkisins í vísindasjóð var aflagt í kjarasamningum 2008.

Forsenda þess að eiga rétt á styrk úr sjóðnum er að hafa greitt í sjóðinn og því eiga þau sem eru í fæðingarorlofi eða atvinnulausir félagsmenn ekki rétt á styrkjum úr sjóðnum.

Skattaleg meðferð styrkja

Styrkinn úr sjóðun er hægt að nýta til þess að sækja námskeið, festa kaup á fagbókum og fleira. Styrkurinn er forskráður á skattaframtali styrkþega og er talinn fram til skatts eins og aðrar tekjur.  Ef félagsmenn hafa kvittanir sem skatturinn tekur gildar sem kostnað á móti styrknum þá skal draga þann kostnað frá styrknum á skattframtali.  Þá er styrkurinn skattfrjáls.  Sé enginn kostnaður á móti styrknum þá mun styrkurinn verða skattlagður. Til að fá upplýsingar um hvaða kvittanir eru teknar gildar er félagsmönnum bent á að snúa sér til ríkisskattstjóra annað hvort á næstu starfsstöð eða á vef embættins.

Ítarefni:

Skipulagsskrá

  1. Skipulagsskrá Vísindasjóðs Félags íslenskra náttúrufræðinga.
  2. Sjóðurinn heitir Vísindasjóður Félags íslenskra náttúrufræðinga. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík.
  3. Aðild að sjóðnum eiga þeir félagsmenn FÍN sem greitt er fyrir í sjóðinn.
  4. Markmið sjóðsins er að auka tækifæri félagsmanna FÍN til framhaldsmenntunar, þróunarstarfa og sí- og endurmenntunar.
  5. Stjórn FÍN skipar stjórn sjóðsins í eitt ár í senn  á fyrsta fundi eftir aðalfund. Sjóðsstjórn skal skipuð 4 félagsmönnum sem greiða í sjóðinn ásamt einum fulltrúa úr stjórn FÍN.
  6. Sjóðsstjórn skiptir með sér verkum, setur sér starfsreglur í samræmi við markmið sjóðsins og heldur fundargerðir. 
  7. Tekjur sjóðsins eru: a) Framlag atvinnurekanda, samkvæmt kjara- eða ráðningarsamningi. b) Tekjur af ávöxtun fjármagns. c) Aðrar tekjur. d)Sjóðurinn skal ávaxtaður á þann hátt sem stjórn telur hagkvæmast á hverjum tíma, samkvæmt fjárfestingastefnu sjóðsins sem samþykkt er af stjórn FÍN.
  8. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið. Reikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum og ársreikningur kynntur stjórn FÍN.
  9. Sjóðsstjórn er heimilt að nýta starfsfólk og skrifstofuaðstöðu FÍN vegna úthlutunar styrkja samkvæmt nánara samkomulagi við skrifstofu FÍN.
  10. Stjórn FÍN hefur heimild til að breyta skipulagsskrá Vísindasjóðs FÍN. Sé þess þörf skal tilkynna sjóðfélögum um breytingar sem gerðar eru á skipulagsskrá sjóðsins í fréttabréfi og heimasíðu félagsins.

Samþykkt á stjórnarfundi FÍN þann 6. apríl 2018

f.h. stjórnar FÍN

Maríanna H. Helgadóttir, formaður              

Þorkell Heiðarsson, varaformaður

Starfsreglur

  1. Sjóðurinn greiðir út styrki vegna framhalds-, sí- og/eða endurmenntunar félagsfólks í Félagi íslenskra náttúrufræðinga. Fé sjóðsins má ekki ráðstafa þannig, að það komi í stað samnings- eða lögbundinna réttinda félagsfólks sem stjórnvöld hafa kostað hingað til. Heimilt er að draga frá kostnað á móti styrkjum á skattframtali (sjá reit 149 á skattframtali) í samræmi við viðeigandi reglur, sé slíkur kostnaður ekki fyrir hendi greiðist tekjuskattur af fjárhæð styrksins. Ekki er haldið eftir staðgreiðsla af styrknum.

  1. Styrkurinn er greiddur fyrir tímabilið 1. nóvember til 31. október árið fyrir úthlutun í samræmi við starfshlutfall og starfstíma. Einungis félagsfólk í Félagi íslenskra náttúrufræðinga, sbr. 3. gr. laga félagsins, sem greitt hefur verið fyrir í sjóðinn eiga rétt til greiðslu úr honum. Hafi sjóðsfélagi ekki sótt um fyrra úthlutunartímabil getur viðkomandi sótt um árið eftir, eftir það fellur eldri réttur niður.

  1. Úthlutað er árlega úr sjóðnum og skal úthlutun fara fram í desember. Styrkupphæð skal miðuð við greidd iðgjöld viðkomandi vinnuveitanda sjóðsfélaga í sjóðinn á tímabilinu, ekki er nauðsynlegt að sækja um styrkinn sérstaklega. Miðað skal við að greiðslu sé lokið að jafnaði 15. desember hvert ár.

  1. Tilkynning um fyrirkomulag úthlutunar úr sjóðnum er auglýst í fréttabréfi FÍN í nóvember ár hvert.

  1. Skrifstofa FÍN annast úthlutun og útgreiðslu styrkja í umboði stjórnar. Stjórn Vísindasjóðs FÍN er heimilt að endurskoða starfsreglur sjóðsins ár hvert og breytingar skal tilkynna sjóðfélögum í fréttabréfi og á heimasíðu félagsins.

Reykjavík, 15. september 2023

Stjórn Vísindasjóðs Félags íslenskra náttúrufræðinga

Svava Svanborg Steinarsdóttir, formaður

Stefán Már Stefánsson

Kristín Hermannsdóttir

Lilja Grétarsdóttir