Veikindi
Veikindaréttur er mismunandi eftir því hvort félagsmaður er opinber starfsmaður eða starfar á almennum vinnumarkaði.
-
Mynd: Brynja Hrafnkelsdóttir
Hér er að finna upplýsingar um veikindarétt félagsmanna sem starfa á opinberum vinnumarkaði og á almennum vinnumarkaði, auk upplýsinga um rétt félagsmanna til fjarveru frá vinnu vegna veikinda barna undir 13 ára aldri.
Veikindaréttur
Félagsmenn eiga almennt rétt á launum í fjarveru vegna veikinda, eftir því sem kveðið er á í lögum eða samið er um í kjarasamningum. Eftir að rétti til launa í veikindum sleppir hjá vinnuveitenda getur félagsmaður átt rétt á greiðslum frá sjúkrasjóðum BHM og/eða frá almannatryggingakerfi.
Veikindaréttur hjá opinberum starfsmönnum (ríki og sveitarfélög)
Félagsfólk sem ráðið er til starfa á mánaðarlaunum í kjarasamningi í a.m.k. 2 mánuði, skal halda launum svo lengi sem veikindadagar þeirra, taldir í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir: Við útreikning á veikindarétti er horft til fjölda veikindadaga síðustu 12 mánuði og sá fjöldi dreginn frá rétti starfsfólks. Til starfstíma (starfsaldur) telst samanlagður starfstími hjá stofnunum ríkis, sveitarfélaga og hjá sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.Félagsfólk sem ráðið er til starfa á mánaðarlaunum í kjarasamningi í a.m.k. 2 mánuði, skal halda launum svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir:
Starfstími | Fjöldi daga |
---|---|
0-3 mánuðir í starfi | 14 |
Næstu 3 mánuðir | 35 |
Eftir 6 mánuði | 119 |
Eftir 1 ár | 133 |
Eftir 7 ár | 175 |
Eftir 12 ár | 273 |
Eftir 18 ár | 360 |
Veikindi barna
Foreldri hefur heimild til að vera frá vinnu í samtals 12 vinnudaga (96 vinnustundir) á hverju almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára aldri. Þessi réttur á einnig við um börn undir 16 ára aldri þegar um alvarleg veikindatilfelli sem leiða til sjúkrahúsvistar í a.m.k. einn dag.
Veikindaréttur á almennum vinnumarkaði
Félagsfólk sem starfar á almennum vinnumarkaði getur ýmist átt rétt til launa í veikindum samkvæmt lögum eða samkvæmt kjarasamningi FÍN við SA.
Lágmarksveikindaréttur samkvæmt lögum er 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð. Eftir eitt ár í starfi er veikindaréttur 1 mánuður, eftir 3 ár í starfi er rétturinn 1 mánuður á fullum launum og 1 mánuður á dagvinnulaunum og eftir 5 ár í starfi 1 mánuður á fullum launum og 2 á dagvinnulaunum. Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningi FÍN við SA er viðtækari en kveðið er á um í lögum og er sem hér segir:
Starfstími | Fjöldi daga |
---|---|
Á 1. ári í starfi | 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð |
Eftir 1 ár | 2 mánuðir |
Eftir 5 ár | 4 mánuðir |
Eftir 10 ár | 6 mánuðir |
Veikindi barna
Foreldri hefur heimild til að vera frá vinnu í samtals 12 vinnudaga (96 vinnustundir) á hverju almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára aldri. Þessi réttur á einnig við um börn undir 16 ára aldri þegar um alvarleg veikindatilfelli sem leiða til sjúkrahúsvistar í a.m.k. einn dag.
Ítarefni
Veikindaréttur samkvæmt kjarasamningum og lögum
- Ríki
- Samband íslenskra sveitarfélaga
- Reykjavíkurborg
- Samtök atvinnulífsins
- Lög nr. 19/1979 um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla
Sjúkra og styrktarsjóðir BHM
- Styrktarsjóður BHM (fyrir félagsmennn hjá ríki eða sveitarfélögum)
- Sjúkrasjóður BHM (fyrir félagsmenn á almennum vinnumarkaði)