Auglýsing BHM -Framboð á aðalfundi BHM
BHM leitar að félagsmönnum til að sitja í stjórnum og nefndum bandalagsins, sjá auglýsingu . Ef þú vilt taka þátt í að móta stefnu og framtíðarsýn BHM þá er hér spennandi verkefni fyrir þig!
Hafðu samband við félagið í gegnum netfangið fin@bhm.is fyrir 15. febrúar næstkomandi hafir þú áhuga á að gefa kost á þér í stjórn eða nefndir bandalagsins.
Kosið verður í eftirtaldar stöður á aðalfundi BHM 27. maí næstkomandi, þó með þeirri undantekningu að varaformaður bandalagsins verður kjörinn af aðalfundarfulltrúum í rafrænni kosningu eigi síðar en fjórum vikum fyrir fundinn.
- Varaformaður BHM: Varaformaður BHM til tveggja ára
- Stjórn BHM: Þrír aðalmenn í stjórn BHM til tveggja ára.
- Varamaður stjórn BHM: Tveir varamenn í stjórn BHM til eins árs.
- Skoðunarmenn reikninga: Tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs.
- Framboðsnefnd: Fimm nefndarmenn og tveir til vara.
- Kjörstjórn: Tveir nefndarmenn og einn til vara.
- Kjara- og réttindanefnd: Tveir nefndarmenn og einn til vara.
- Þjónustu- og aðbúnaðarnefnd: Tveir nefndarmenn og einn til vara.
- Jafnréttisnefnd: Tveir nefndarmenn og tveir til vara.
- Lagabreytinganefnd: Fimm nefndarmenn.
- Stjórn Orlofssjóðs: Tveir nefndarmenn til tveggja ára.
- Stjórn Sjúkrasjóðs: Tveir nefndarmenn til tveggja ára.
- Stjórn Starfsmenntunarsjóðs: Einn nefndarmaður til tveggja ára.