12 nóv. 2018

Lífeyriskerfið 101 – Opinn morgunfundur BHM 27. nóvember 2018

Þriðjudaginn 27. nóvember nk. stendur BHM fyrir opnum morgunfundi þar sem fjallað verður um grunnþætti íslenska lífeyriskerfisins, það borið saman við lífeyriskerfi nágrannalandanna og vikið að mögulegri framtíðarþróun kerfisins. 

Fundurinn fer fram á Reykjavík Natura (áður Hótel Loftleiðir) milli kl. 9:00 til 10:30. 

Opnað hefur verið fyrir skráningu á vef BHM (smellið hér). Skráningargjald er kr. 2.000 og greiðist með greiðslukorti við skráningu (debet- eða kreditkorti). 

Allt áhugafólk um lífeyrismál velkomið. Félagsmenn aðildarfélaga BHM eru sérstaklega hvattir til að mæta. 

Dagskrá

8:30 Húsið opnar, morgunkaffi

9:00 Fundur settur

9:05 Uppbygging íslenska lífeyriskerfisins – í stuttu máli 

Vala Rebekka Þorsteinsdóttir, lögfræðingur hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins – LSR.

9:30 Lífeyriskerfið og erlendur samanburður 

Björn Z. Ásgrímsson, sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu, og Stefán Halldórsson, verkefnastjóri hjá Landssamtökum lífeyrissjóða 

9:55 Spáð í spilin – Rýnt í framtíð lífeyriskerfisins 

Unnur Pétursdóttir, formaður FS og fulltrúi BHM í stjórn LSR 

10:20 Samantekt fundarstjóra 

10:30 Dagskrárlok 

 Fundarstjóri er Bragi Skúlason, formaður Fræðagarðs – stéttarfélags háskólamenntaðra