9 okt. 2018

Vinnustaðafundir FÍN á Suðurlandi

9. október á Selfossi og 18. október á Höfn í Hornafirði

9. október á Selfossi og 18. október á Höfn í Hornafirði

Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Suðurlandi næstu tvær vikur. Á þriðjudaginn 9. október verður haldinn fundur á Selfossi og á miðvikudaginn 18. október á Höfn í Hornafirði. 

Félagsmenn á Suðurlandi hafa þegar fengið sendan tölvupóst frá félaginu og skráð sig til þátttöku á þann fundarstað sem þeim hentar og jafnframt bókað viðtöl við formann.

Þann 23. október verður vinnustaðafundur á Suðurnesjum. Félagsmenn á því svæði munu fá upplýsingar um skráningu senda í tölvupósti. 

Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér.