Endurgreiðsla ævigjalds

í Orlofssjóð BHM

Virkir félagsmenn í FÍN sem greiða ævigjald í Orlofssjóð BHM þegar þeir hefja töku lífeyris og hafa greitt í 10 ár eða lengur í félagið geta lagt fram kvittun fyrir greiðslu á skrifstofu FÍN og óskað eftir endurgreiðslu á gjaldinu.

Reglur félagsins um endurgreiðslu ævigjalds í Orlofssjóð BHM

  1. Þeir sem eru virkir félagsmenn í Félagi íslenskra náttúrufræðinga, fara á lífeyri og hafa greitt í 10 ár eða lengur í félagið, hafa kost á því að sækja um endurgreiðslu á ævigjaldi í Orlofssjóð BHM.
  2. Félagsmenn skulu skila inn kvittun fyrir greiðslu ævigjaldsins á skrifstofu FÍN.
  3. Uppfylli félagsmaður skilyrði sem sett eru í lið 1 þá er ævigjaldið endurgreitt.
  4. Reglur þessar taka gildi 1. mars 2012.

Samþykkt á stjórnarfundi FÍN þann 10. ágúst 2012

 Reglur Orlofssjóð BHM - Ævigjald

  • Sjóðfélagi hefur 24 mán eftir að hafa lokið störfum til þess að óska eftir ævigjaldi (frá því að síðustu iðgjaldagreiðslur bárust).
  • Ævisjóðfélagar geta ekki sótt um á úthlutunartímabilum (páskar og sumar) og eru ekki í forgangsbókun þegar það opnar fyrir þá sem fengu synjað eða hættu við úthlutaða bókun.
  • Ævisjóðfélagar geta þó bókað þegar það opnar fyrir alla og bókað það sem afbókast á þessum tímabilum. ATH þessi breyting á við um alla sem greitt hafa ævigjald og þá sem munu greiða ævigjaldið.
  • Þeir sem greitt hafa ævigjaldið eftir 1. janúar 2022 en hafa ekki nýtt sér orlofssjóðinn að neinu leyti síðan (þ.e. bókað bústað, keypt gjafabréf, kort eða Ferðaávísun) geta ef þeir vilja óskað eftir endurgreiðslu á ævigjaldinu með því að senda tölvupóst á sjodir@bhm.is .