1 okt. 2018

Vinnustaðafundir FÍN á Suðurlandi á næstu tveimur vikum

Haldnir verða fundir á Selfossi, í Vestmannaeyjum, á Höfn í Hornafirði og á Kirkjubæjarklaustri

Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Suðurlandi á næstu tveimur vikum. 

Vinnustaðafundir verða haldnir þann 9. október á Selfossi, 11. október í Vestmannaeyjum, 18. október á Höfn í Hornafirði og 19. október á Kirkjubæjarklaustri. 

Félagsmenn á Suðurlandi hafa nú fengið sendan tölvupóst frá félaginu þar sem þeir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku á þann fundarstað sem hentar og jafnframt að bóka viðtal við formann hafið þeir vilja til þess.

Þeir félagsmenn á Suðurlandi sem hafa ekki fengið tölvupóst með upplýsingum um skráningu eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins í gegnum netfangið fin@bhm.is. Skráningu þarf að vera lokið eigi síðar en kl: 12:00 á hádegi þann 8. október nk.

Komi til þess að þátttaka verði engin á fundi eða í viðtalstíma mun formaður fella niður þá fundartíma eða viðtalstíma og tilkynna um slíkt á vefsíðu félagsins. Því er mikilvægt að þeir félagsmenn sem ætla að mæta til fundar eða í viðtalstíma skrái þátttöku sína með því að smella á hlekk hér fyrir ofan.

Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér.

Island