Vinnustaðafundir FÍN á Norðurlandi vestra á miðvikudag og fimmtudag
19. september á Hólum í Hjaltadal og 20. september á Sauðárkróki
Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Norðurlandi vestra í þessari viku. Á miðvikudag 19. september verður haldinn fundur á Hólum í Hjaltadal og á fimmtudag á Sauðárkróki.
Félagsmenn á Norðurlandi vestra hafa þegar fengið sendan tölvupóst frá félaginu og skráð sig til þátttöku á þann fundarstað sem þeim hentar og jafnframt bókað viðtöl við formann.
Í næstu viku verða
vinnustaðafundir á Vestfjörðum. Félagsmenn á því svæði munu fá
upplýsingar um skráningu senda í tölvupósti.
Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar
á vefsíðu félagsins, hér.