21 des. 2018

Ný undirritaðir stofnanasamningar

FÍN hefur undirritað stofnanasamninga við MAST og Krabbameinsfélag Íslands núna rétt fyrir hátíðirnar

Þann 20. desember 2018 var undirritaður stofnanasamningur milli FÍN og Matvælastofnunar - MAST sem tekur gildi 1. janúar 2019 og þann 21. desember var undirritaður stofnanasamningur milli FÍN og Krabbameinsfélags Íslands sem tók gildi 1. júní 2018.  FÍN þakkar þeim sem komu að samningsferlinu fyrir samstarfið.

Samningarnir hafar verið vistaðir á heimasíðu félagsins undir stofnanasamningar og nálgast má hér. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér efni samninganna og geta ávallt leitað til félagsins vakni upp einhverjar spurningar.