3 feb. 2014

Þekking er framtíðin og framtíðin er núna - leiðréttum kjör háskólamenntaðra

Fjölmennum og sýnum samstöðu

Samstöðufundur Bandalags háskólamanna (BHM) vegna kjarasamninga verður haldinn í Háskólabíói þann 6. febrúar 2014, kl.15:00 - Fjölmennum og sýnum samstöðu.

Félagsmenn sem hafa tök á því að mæta eru hvattir til að fjölmenna á kjara- og samstöðufundinn sem er sameiginlegur kjarafundur aðildarfélaga BHM.

Formleg tilkynning verður ekki send á vinnuveitendur, en fundurinn verður ríkulega kynntur opinberlega undir yfirskriftinni „sameiginlegur kjarafundur“.

HÆGT VERÐUR AÐ FYLGJAST MEÐ FUNDINUM Í GEGNUM NETIÐ

Búið er að gera viðburð á Facebook:
https://www.facebook.com/events/1447019085528377/