29 okt. 2013

Mínar síður BHM og aðildarfélaga

Bandalag háskólamanna (BHM) hefur tekið í notkuð nýjan vef, snjall-vef, og komið á fót þjónustugátt, svokölluðum Mínum síðum, þar sem félagsmenn aðildarfélaga  BHM geta á auðveldan máta nálgast upplýsingar um eigin notkun á styrkjum, fylgst með stöðu umsókna, gengið frá nýjum umsóknum og rafrænum fylgigögnum og fylgst með iðgjaldagreiðslum frá vinnuveitanda.  Hægt er að komast á Mínar síður frá vef félagsins framvegis með því að smella á "Mínar síður" vinstra megin í listanum hér til hliðar.