Auglýst er eftir framkvæmdastjóra
Umsóknarfrestur er til 8. maí nk.
Félag íslenskra náttúrufræðinga óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa og er umsóknarfrestur til 8. maí, nk. Capacent mun sjá um ráðningarferlið í samvinnu við framkvæmdastjórn félagsins. Auglýsingin verður formlega birt á laugardaginn kemur og þá verður einnig opnað fyrir umsóknir á vefsvæði Capacent.