Boðuð verkföll FÍN eru lögmæt!
Niðurstaða Félagsdóms liggur fyrir í dómsmáli ríkisins gegn FÍN um hvort boðuð verkföll FÍN væru lögmæt. Niðurstaðan er að verkföllin eru lögmæt. Verkföll hefjast því hjá ríkinu eftir því sem hér segir:
- Ótímabundið verkfall hefst kl. 00:00 þann 7. apríl 2015 hjá félagsmönnum FÍN sem starfa hjá Landspítala.
- Ótímabundið verkfall hefst kl. 00:00 þann 20. apríl 2015 hjá félagsmönnum FÍN sem starfa hjá Matvælastofnun
- Allir félagsmenn FÍN sem starfa hjá ríkinu fara í tímabundið verkfall þann 9. apríl 2015 frá 12:00 til 16:00. Mikilvægt er að flestir taki þátt í viðburði sem staðið verður fyrir þann daginn.