Sala á flugsætum - Sjóðfélagar OBHM
Okkur var að berast tilkynning frá Orlofssjóði BHM um að hafin væri sala til sjóðfélaga á flugsætum hjá flugfélaginu Ernir á Orlofsvef BHM á flugleiðirnar, Vestmannaeyjar, Höfn í Hornafirði, Húsavík og Bíldudal.

Verð á flugleiðunum er:
- Vestmannaeyjar kr. 7.500,-
- Höfn í Hornafirði kr. 9.800,-
- Húsavík kr. 9.800,-
- Bíldudalur kr. 9.200,-
Engar fjöldatakmarkanir eru á þessum flugávísunum en vert er að taka fram að þær gilda aðeins fyrir félagsmenn í Orlofssjóði BHM, ekki maka þeirra eða börn.
Ekki er hægt að nota þessa flugmiða í eftirfarandi flugi hjá Flugfélaginu Erni á háannatímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 2015:
Kl. 8.55 (morgunflug) Reykjavík -- Höfn; mánudaga, þriðjudaga og föstudaga.
Kl. 18.55 (síðdegisflug) Höfn -- Reykjavík, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Öll flug: Reykjavík -- Vestmannaeyjar og Vestmannaeyjar -- Reykjavík um verslunarmannahelgi ár hvert. (Frá föstudegi til mánudags þá helgi).
Sjá nánar á Orlofsvefnum undir kort og gjafabréf
Með samningi þessum vilja Flugfélagið Ernir og OBHM vekja athygli almennings á flugsamgöngum innanlands og hversu nauðsynlegar flugsamgöngur eru fyrir landsmenn alla.