11 jún. 2014

Af félagsfundi FÍN þann 11. júní

Félagsfundur FÍN samþykkti eftirfarandi tillögu stjórnar FÍN sem var lögð fyrir fundinn:

,,Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) samþykkir að hefja atkvæðagreiðslu um ótímabundið verkfall félagsmanna sem starfa á Landspítala. Verkfallið hefjist þann 30. júní 2014 kl. 00:00.  Kjörfundur hefjist þann 11. júní 2014 kl. 16:30 og ljúki þann 13. júní 2014, kl. 12:00."

Samþykktar voru almennar úthlutunarreglur úr Kjaradeilusjóði FÍN.