22 maí 2014

Tilkynning til launagreiðenda!

Þann 2. júní nk. mun breyting verða á innheimtu iðgjalda aðildarfélaga BHM.    Í stað þess að launagreiðandi greiði upphæð skilagreina inn á reikning BHM eins og gert er í dag, mun BHM senda kröfur í netbanka um leið og skilagrein berst frá launagreiðanda og hún hefur verið bókuð.  Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar eftir útborgunarmánuð en eindagi síðasti virki dagur þess mánaðar.
Dráttarvextir munu reiknast á kröfuna sé hún ekki greidd fyrir eindaga.