17 apr. 2014

Undirritun kjarasamnings við Reykjavíkurborg - Verkfalli frestað!

Félag íslenskra náttúrufræðinga undirritaði undir kvöld kjarasamning við Reykjavíkurborg.  Félagið boðar því félagsmenn FÍN sem starfa hjá Reykjavíkurborg til kynningarfundar um nýgerðan kjarasamning þann 22. apríl nk. kl: 14:00 að Borgartúni 6, 3 hæð, í fundarsalnum Ásbrú.  Formaður félagsins hefur jafnframt frestað verkfallsboðun fram yfir atkvæðagreiðslu um samninginn.  Félagið hvetur félagsmenn FÍN sem starfa hjá Reykjavíkurborg að fjölmenna á fundinn og kynna sér nýgerðan kjarasamning.  Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn verður rafræn og atkvæðaseðill mun berast ykkur í tölvupósti.