31 mar. 2014

Samkomulag undirritað

Í gær undirritaði FÍN ásamt öðrum aðildarfélögum BHM og Samband íslenskra sveitarfélaga samkomulag um framlengingu á kjarasamningi. Samningurinn hefur verið kynntur á félagsfundi þar sem farið var yfir helstu atriði samningsins.  Atkvæðagreiðsla er í undirbúningi en henni skal vera lokið eigi síðar en 11. apríl n.k.