Námskeið um lífeyrismál við starfslok
Haldið 17. október 2018
Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar miðvikudaginn 17. október næst komandi. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42, 2. hæð.
Á námskeiðinu verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.
Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðið því skipt upp eftir því.
B
deild - LsRb - LSK kl. 16.30
A deild kl. 17.30
V deild kl. 18.30