Hverjir eru í FÍN?
Félagsmenn í FÍN sinna mjög fjölbreyttum störfum á íslenskum vinnumarkaði.
Félag íslenskra náttúrufræðinga er stéttarfélag fyrir þá sem lokið hafa bachelor prófi eða sambærilegri menntun í náttúrufræðum, arkitektúr eða öðrum tengdum greinum.Félagsmenn starfa á fjölbreyttum starfsvettvangi og hér má skoða frekari upplýsingar um hvað náttúrufræðingar gera og hvernig félagið er samsett.
Félagsmenn í Félagi íslenskra náttúrufræðinga sinna mjög fjölbreyttum störfum á íslenskum vinnumarkaði. Þeir starfa m.a. sem:
- Arkitektar
- Búfræðikandidatar
- Dýralæknar
- Eðlisfræðingar
- Efnafræðingar
- Erfðafræðingar
- Ferðamálafræðingar
- Fiskifræðingar
- Fornleifafræðingar
- Geislafræðingar
- Grasafræðingar
- Jarðeðlisfræðingar
- Jarðfræðingar
- Landfræðingar
- Landslagsarkitektar
- Lífeðlis- og lífefnafræðingar
- Lífeindafræðingar
- Líffræðingar
- Líftæknifræðingar
- Lyfjafræðingar
- Læknar
- Matvælafræðingar
- Meinatæknar
- Næringarfræðingar
- Sameindalíffræðingar
- Sálfræðingar
- Sjávarlíffræðingar
- Sjávarútvegsfræðingar
- Skógfræðingar
- Stjarneðlisfræðingar
- Stærðfræðingar
- Tannlæknar
- Tæknifræðingar
- Tölvunarfræðingar
- Umhverfisfræðingar
- Verkfræðingar
- Veðurfræðingar
- Vistfræðingar