20 sep. 2018

Vinnustaðafundir FÍN á Vestfjörðum í næstu viku

25. september verða fundir á Ísafirði og Bolungarvík, 26. september á Patreksfirði, Tálknafirði og Þingeyri og 27. september á Hólmavík og Búðardal.

Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Vestfjörðum í næstu viku. 

Þann 25. september verða fundir á Ísafirði og Bolungarvík, 26. september á Patreksfirði, Tálknafirði og Þingeyri og 27. september á Hólmavík og Búðardal.

Félagsmenn á Vestfjörðum hafa nú fengið sendan tölvupóst frá félaginu þar sem þeir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku á þann fundarstað sem hentar og jafnframt að bóka viðtal við formann hafið þeir vilja til þess.

Þeir félagsmenn á Vestfjörðum sem hafa ekki fengið tölvupóst með upplýsingum um skráningu eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins í gegnum netfangið fin@bhm.is. Skráningu þarf að vera lokið eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi þann 24. september nk.

Komi til þess að þátttaka verði engin á fundi eða í viðtalstíma mun formaður fella niður þá fundartíma eða viðtalstíma og tilkynna um slíkt á vefsíðu félagsins. Því er mikilvægt að þeir félagsmenn sem ætla að mæta til fundar eða í viðtalstíma skrái þátttöku sína með því að smella á hlekk hér fyrir ofan.

Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér .

Island