BHM 60 ára – afmælisfagnaður í Borgarleikhúsinu
Opnað verður fyrir skráningu kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 14. september
Þriðjudaginn 23. október næstkomandi verða 60 ár liðin frá stofnun Bandalags háskólamanna.
Þennan dag stendur bandalagið fyrir afmælisfagnaði í aðalsal Borgarleikhússins þar sem brugðið verður ljósi á ýmsa þætti sem tengjast baráttu BHM í sex áratugi. Umsjón með viðburðinum hefur Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, og hefur hann fengið til liðs við sig hóp leikara, söngvara, hljóðfæraleikara og skemmtikrafta sem munu taka þátt í gleðinni.
Afmælisfagnaðurinn hefst
kl. 17:00 þann 23. október og er áætlað að hann muni standa í um
klukkustund en á eftir verður móttaka fyrir gesti í anddyri
Borgarleikhússins.
Félagsmönnum aðildarfélaga BHM býðst að tryggja sér sæti með því að
skrá sig á vef bandalagsins (bhm.is). Opnað verður fyrir skráningu kl.
12:00 á hádegi föstudaginn 14. september og stendur hún yfir í viku eða
til 21. september. Vegna takmarkaðs sætafjölda gildir reglan: Fyrst
koma, fyrst fá.
FÍN hvetur félagsmenn til að nýta þetta tækifæri og taka þátt í gleðinni 23.
október.
Smelltu hér til að fara á
skráningarsíðuna.
Þess skal getið að viðburðurinn verður tekinn upp og verður
upptakan gerð aðgengileg á vef BHM.
Smelltu
hér til að nálgast yfirlit um 60 ára sögu BHM.