25 maí 2018

Kynningar- og fræðslufundir um lífeyrismál fyrir virka sjóðfélaga hjá LSR

Um er að ræða árlega kynningar- og fræðslufundi fyrir sjóðfélaga sem eiga réttindi í A-deild LSR eða B-deild LSR.

FÍN hvetur félagsmenn sem eiga aðild að LSR til að mæta á kynningar- og fræðslufundi LSR.

Lsr

Dagsetningar sem um ræðir:

  • 28. maí fyrir sjóðfélaga í B-deild LSR
  • 29. maí fyrir sjóðfélaga í A-deild LSR
  • 30. maí fyrir sjóðfélaga sem eiga réttindi bæði í A- og B-deild LSR.

Hægt er að velja um tvær tímasetningar, kl. 08:30 - 10:00 eða kl. 16:30 - 18:00.

Sjóðfélagar eru beðnir um að skrá sig á fundinn með því að hringja í síma 510 - 6100 eða með því að senda tölvupóst á netfangið lsr@lsr.is og tilgreina nafn, kennitölu og val á tímasetningu.

Sjá einnig á vef LSR, www.lsr.is.