7 feb. 2018

Orlofsblað OBHM 2018

Upplýsingar um umsóknir og úthlutun orlofshúsa OBHM fyrir árið 2018

Nú í vikunni gaf Orlofssjóður BHM (OBHM) út orlofsblaði fyrir árið 2018. Orlofsblaðið mun berast sjóðfélögum í bréfpósti auk þess sem finna má blaðið HÉR.

Páskaleiga 2018 

Opnað var fyrir umsóknir til páskaútleigu árið 2018 þann 1. janúar síðastliðinn. Útleigutímabilið er frá 28. mars. til og með 4. apríl.

Umsóknarfrestur rennur út að miðnætti þann 1. mars og stefnt er á að úthlutun klárist þann 2. mars. Sjóðfélagar sem fá úthlutað um páska hafa viku til að ganga frá greiðslu, til 9. mars (greiðslufrestur rennur þá út á miðnætti 8. mars).

Eftir það opnast bókunarvefur í eina viku (vikuna frá 9. til og með 16. mars) EINUNGIS fyrir þeim sem sóttu um en fengu ekki úthlutað og þeim sem greiddu ekki á réttum tíma. Þá gildir reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.

Húsum sem ekki var úthlutað um páska verða sett á bókunarvef kl. 09:00 þann 16. mars. Þá gildir reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.

Útlönd 2018 

Opnað var fyrir umsóknir til leigu í útlöndum árið 2018 þann 2. janúar síðastliðinn.

Útleigutímabilið er frá úthlutunartímabilið er frá 5. maí til og með 25. september.

Umsóknarfrestur rennur út að miðnætti þann 15. febrúar og stefnt er á að úthlutun klárist þann 16. febrúar.

Sjóðfélagar sem fá úthlutað íbúð í útlöndum hafa tvær vikur til að ganga frá greiðslu, til 2. mars (greiðslufrestur rennur þá út á miðnætti 1. mars).

Eftir það opnast bókunarvefur í eina viku (vikuna frá 2. til og með 7. mars) EINUNGIS fyrir þeim sem sóttu um en fengu ekki úthlutað og þeim sem greiddu ekki á réttum tíma.

Húsum sem ekki var úthlutað erlendis verða sett á bókunarvef 8. mars kl. 09:00. Þá gildir reglan, fyrstur kemur fyrstur fær.

Sumarútleiga 2018 

Opnað var fyrir umsóknir til sumarútleigu árið 2018 þann 1. febrúar síðastliðinn.

Útleigutímabilið er frá 15. júní til og með 24. ágúst.

Umsóknarfrestur rennur út að miðnætti þann 2. apríl og stefnt er á að úthlutun klárist þann 3. apríl.

Eftir að úthlutun á sér stað þá hafa þeir sjóðsfélagar sem fá úthlutað orlofshúsi í sumarleigu tvær vikur til að ganga frá greiðslu, til 17. apríl (greiðslufrestur rennur þá út að miðnætti 16. apríl).

Eftir það þá opnast bókunarvefur í sex daga* (frá 17. til og með 22. apríl) EINUNGIS fyrir þeim sem sóttu um en fengu ekki úthlutað og þeim sem greiddu ekki á réttum tíma. Þá gildir reglan, fyrstur kemur fyrstur fær. ATH. að alltaf er opnað fyrir bókanir kl. 09:00.

Þann 25. apríl** kl. 09:00 verða eftirfarandi hlutir settir á bókunarvef:

Sumarhúsum sem ekki var úthlutað.

Flakkarahúsin (þeim er ætlað að auka möguleika þeirra sem eiga fáa punkta til að fá orlofshús að sumri. Þetta virkar þannig að einu húsi í hverjum landshluta er haldið frá og unnt er að leigja það eina viku. Húsin eru í Aðaldal, Brekkuskógi, Hraunvéum og Miðhúsum).
Tímabilið 8.-15 júní og 24. - 31. ágúst 2018 (sem eru vikunar fyrir og eftir sumarútleigutímabil). Þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

____________________________________________________________________________________________________________________________________________________

*Í ný útgefnu Orlofsblaði stendur að þessi tími eigi að vera vika en það er rangt, sá dagafjöldi sem stendur hér er réttur.
**Í ný útgefnu Orlofsblaði stendur 23. apríl en sú dagsetning er röng, sú dagsetning er hér stendur gildir.

 ATH. Þessar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar. Verði minniháttar breytingar á því sem kemur fram hér á að ofan verður tilkynnt um þær breytingar á vefnum bhm.fritimi.is undir dálknum „Tilkynningar”. Verði meiriháttar breytingar á því sem hér kemur fram fá sjóðsfélagar póst um slíkt.