Upplýsingafundur um Kjararáð.
BHM efnir til upplýsingafundar um Kjararáð fyrir félagsmenn aðildarfélaga föstudaginn 26. janúar nk.
FÍN hvetur félagsmenn sína til að mæta á upplýsingafund um Kjararáð nk. föstudag kl. 12-13. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 6, 3. hæð (Ásbrú).
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Sigurður H. Helgason, skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, fjallar um umgjörð og þróun Kjararáðs og ber saman við fyrirkomulag í nágrannalöndunum.
Guðfinnur Þór Newman, stjórnarmaður í BHM, kynnir samanburð á launaþróun einstakra aðildarfélaga BHM við þróun kjararáðshópa.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, stýrir fundi.
Boðið verður upp á samlokur.