11 jan. 2018

Viljayfirlýsing gegn einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Fulltrúar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins undirrituðu í dag sameiginlega viljayfirlýsingu um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd bandalagsins. Í henni kemur m.a. fram að íslensk lög og reglur kveði á um að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi á vinnustöðum skuli ekki liðið. Komi það upp skuli bregðast við því með markvissum hætti. Þá segir að öryggiskennd og góður starfsandi skipti sköpum fyrir vellíðan starfsmanna. Því næst segir orðrétt:

„Á vinnustaðnum eigum við góð samskipti og virðum eftirfarandi sáttmála:

  • Við þekkjum stefnu og viðbragðsáætlun vinnustaðarins gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi og erum meðvituð um skyldur okkar.
  • Við líðum ekki einelti, áreitni eða ofbeldi, beitum því ekki og vitum að meðvirkni með geranda getur skaðað starfsmenn og vinnustað okkar.
  • Við berum sameiginlega ábyrgð á vinnuumhverfinu og leggjum okkar af mörkum til að bæta það enn frekar.
  • Við erum ólík, með mismunandi bakgrunn og lífsskoðanir, en sýnum hvert öðru virðingu í öllum samskiptum.
  • Við skiljum að upplifun af samskiptum er mismunandi og gerum ekki lítið úr viðbrögðum og tilfinningum annarra.
  • Við ræðum um framkomu sem okkur mislíkar og tökum upp varnir fyrir þá sem brotið er gegn.
  • Við tökum tillit til ábendinga um að við getum bætt framkomu okkar.
  • Við sýnum öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum.“
Viljayfirlýsingin var undirrituð að loknum fjölsóttum fundi sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í morgun á vegum Vinnueftirlitsins, stjórnar Vinnueftirlitsins og Velferðarráðuneytisins. Fundur var haldinn til að vekja athygli á mikilvægi þess að efla forvarnir á sviði vinnuverndar með sérstakri áherslu á einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Yfirlýsingin er birt í  heild sinni á vef Vinnueftirlitsins

 og þar gefst forsvarsmönnum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka jafnframt tækifæri til að undirrita hana með rafrænum hætti og gerast þar með aðilar að henni.