Heitt á könnunni hjá FÍN fyrir kröfugönguna 1. maí nk.
FÍN býður félagsmönnum og fylgdarmönnum að koma við á skrifstofu félagsins í kaffi fyrir kröfugönguna þann 1. maí nk.
Frá kl. 12:30 þann 1. maí nk. verður heitt á könnunni á skrifstofu FÍN í Borgartúni 6, 3. hæð. Við hvetjum félagsmenn og fylgdarmenn þeirra að kíkja við í kaffi áður en haldið verður í kröfugönguna kl. 13. Tengil á viðburðinn á facebook má finna hér.
1. maí hátíðarhöldin í Reykjavík hefjast með kröfugöngu þar sem yfirskriftin er: HÚSNÆÐISÖRYGGI – SJÁLFSÖGÐ MANNRÉTTINDI
Dagskrá 1. maí:
Safnast saman á horni Laugavegs og Snorrabrautar klukkan 13:00
Kröfuganga hefst klukkan 13:30
Útifundur á Ingólfstorgi settur klukkan 14:10 (sjá dagskrá hér)