24 apr. 2017

Skrifstofa FÍN lokuð 27. og 28. apríl nk. 

Skrifstofa FÍN verður lokuð 27. og 28. apríl nk. vegna kynnisferðar starfsmanna til stéttarfélaga í Þýskalandi. 

Þann 27. og 28. apríl nk. munu starfsmenn FÍN, ásamt starfsmönnum BHM og aðildarfélaga, sækja heim og kynnast starfsemi stéttarfélaga og heildarsamtaka í Þýskalandi. 

Ferðin er farin til að kynnast starfsemi systurfélaga og -samtaka okkar í Þýskalandi í þeirri vona að efla megi þjónustu við félagsmenn FÍN og annarra aðildarfélaga BHM. Ferðin er kostuð af Starfsmenntunarsjóði BHM sem veitir sjóðsfélögum styrk vegna þátttöku þeirra í faglega skipulögðum heimsóknum eða kynnisferðum, innan lands sem utan, enda tengist viðfangsefnið fagsviði eða starfi þeirra.

Af þessum sökum verður skrifstofa FÍN lokuð þessa daga. Skrifstofan opnar aftur kl. 9:00 þann 2. maí. Ef erindið þolir ekki bið er félagsmönnum bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra félagsins í síma 822-1417.