12 okt. 2016

Nýr bæklingur Vinnueftirlits um einelti, áreitni og ofbeldi. 

„Sættum okkur ekki við einelti, áreitni, ofbeldi“

Vinnueftirlitið hefur gefið út nýtt fræðslu- og leiðbeiningarrit með tilhlutan velferðarráðuneytisins. Ritinu er ætlað að leiðbeina og styðja stjórnendur og aðra á vinnustöðum í að fyrirbyggja og bregðast við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og öðru ofbeldi á vinnustöðum.

Hægt er að hlaða niður ritinu „Sættum okkur ekki við einelti, áreitni, ofbeldi“ hér eða panta prentað eintak með því að senda tölvupóst á vinnueftirlit@ver.is

Í lok mánaðarins verður einnig gefð út rit, með áherslu á fræðslu og leiðbeiningar fyrir starfsfólk, um einelti, áreitni og annað ofbeldi á vinnustöðum.