8 apr. 2016

Formannsskipti hjá FÍN og ákvörðun um félagsgjald

Á aðalfundi félagsins, 8. apríl 2016, var kosinn nýr formaður FÍN.  Páll Halldórsson lét af formennsku og Maríanna H. Helgadóttir var kosin nýr formaður. 

Einnig var ákveðið að félagsgjöld FÍN myndu breytast frá og með 1. júní 2016.  Félagsgjaldið verður eitt í félaginu bæði fyrir almennan og opinberan markað eða 0,7% af heildarlaunum þó aldrei meira en 7.000 kr. á mánuði.