21 des. 2015

Greiðslur úr Vísindasjóði FÍN

Umsóknir sem bárust til og með 16. desember sl. í Vísindasjóð FÍN hafa verið yfirfarnar.  Þær umsóknir sem hafa verið samþykktar verða greiddar út fyrir kl. 16:00 þann 21. desember 2015.  Vinsamlegast kannið stöðu umsóknar á Mínum síðum.  Sé umsókn ekki samþykkt heldur í bið, þá biðjum við ykkur vinsamlegast setja ykkur í samband við félagið, en tölvupóstur mun berast þessum aðilum á allra næstu dögum þar sem óskað er annað hvort eftir skýringum eða gögnum til að hægt sé að afgreiða umsókn fyrir áramótin.  Ef eitthvað er óljóst þá vinsamlegast sendið tölvupóst á fin@bhm.is.